fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirLögreglan rannsakar alvarlega líkamsárás í Hafnarfirði

Lögreglan rannsakar alvarlega líkamsárás í Hafnarfirði

Talið er að bareflum hafi verið beitt við árásina

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú alvarlega líkamsárás sem átti sér stað í húsi Hafnarfirði í byrjun mánaðarins.

Þar veittist hópur manna að þremur mönnum með grófum hætti, en talið er að bareflum hafi verið beitt við árásina.

Einn þeirra sem fyrir árásinni varð var fluttur á slysadeild, en hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi.

Fjórir menn voru handteknir í þágu rannsóknarinnar, en hún snýr einnig að frelsissviptingu og broti á vopnalögum. Þá hafa enn fremur verið framkvæmdar nokkrar húsleitir í tengslum við málið.

Lögreglan segir ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2