fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirLýst eftir Söndru Líf

Lýst eftir Söndru Líf

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Söndru Líf Þórarinsdóttur, 27 ára, til heimilis í Hafnarfirði.

Síðast er vitað um ferðir hennar á skírdag, sl. fimmtudag.

Sandra er grannvaxin, um 160 sm á hæð og með mjög sítt, rauðleitt hár. Hún var klædd í svartar buxur, svartan leðurjakka og hvíta strigaskó. Sandra var með hálsklút (karrígulur og blettatígursmunstur) og með svarta og gráan klút/hárband í hárinu.

Hún hefur til umráða ljósgráan Ford Focus, skráningarnúmer UH828.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Söndru, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2