fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirLýst eftir Svanhvíti Harðardóttur - UPPFÆRT

Lýst eftir Svanhvíti Harðardóttur – UPPFÆRT

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Svanhvíti Harðardóttur, 37 ára.

Síðast er vitað um ferðir Svanhvítar um kl. 13:00 í gær þegar hún fór frá heimili sínu á Völlunum í Hafnarfirði.

Svanhvít er 167 sm á hæð, sólbrún með ljóslitað rúmlega axlarsítt hár. Hún var í gær klædd í gráar joggingbuxur og hettupeysu en ekki er vitað um lit peysunnar. Þá var hún með hárið í háu tagli.

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Svanhvítar, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.

Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í leit.

Uppfært kl. 22:20:

Talið er að Svanhvít hafi verið á hvítu rafhlaupahjóli af tegundinni Xiaomi M365, sem er hvítt að lit.

Þeir sem hafa séð þannig hjól eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 112.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2