fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirLýst yfir neyðarstigi almannavarna og miklar takmarkanir vegna útbreiðslu á kórónuveirunni

Lýst yfir neyðarstigi almannavarna og miklar takmarkanir vegna útbreiðslu á kórónuveirunni

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna sýkinga af völdum COVID-19. Neyðarstig tók gildi á miðnætti sl. samhliða hertum samkomutakmörkunum.

Mikil fjölgun smita undanfarna daga auka líkur á veldisvexti

Frá 15. september til 4. október hafa um 630 einstaklingar greinst með COVID-19 innanlands. Jafnframt hefur daglegur fjöldi nýgreindra verið um 30-40 og  hlutfall þeirra sem er í sóttkví verið um 50%. Fjöldi þeirra sem veikst hefur alvarlega hefur aukist og hafa um 20 einstaklingar þurft á sjúkrahúsinnlögn að halda. Í dag eru þrettán á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu og tveir á öndunarvél.

Samhliða hertum samkomutakmörkunum hefur verið ákveðið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna á öllu landinu. Það er gert meðal annars á grunni þess að sýkingin er til staðar í öllum  landshlutum.

Virkjun neyðarstigs hefur ekki teljandi áhrif á almenning umfram hættustig sem varað hefur frá 25. maí. Stjórnvöld og viðbragðsaðilar hafa undanfarið unnið að miklu leyti eins og um neyðarstig væri að ræða. Því hafa ýmsar ráðstafanir sem neyðarstig kveður á um þegar verið gerðar. Þar má nefna áætlanir um vöktun og farsóttagreiningu ásamt því að tryggja að sóttvarnaráðstöfunum sé beitt.

Mjög áríðandi er að fólk fylgi leiðbeiningum um einstaklingsbundnar smitvarnir, virði sóttkví og fylgi gildandi takmörkunum á samkomum.

Óbreytt landamæraskimun verður þó til 1. desember.

Helstu ráðstafanir í gildi til 19. október

  • Fjöldatakmörkun
    Takmörkun á fjölda einstaklinga sem kemur saman miðast við 20 fullorðna, hvort sem er í einkarýmum eða í opinberum rýmum. Þetta á m.a. við um:

    • Ráðstefnur, málþing, útifundi o.þ.h.
    • Kennslu, fyrirlestra og prófahald.
    • Skemmtanir, svo sem tónleika, menningarviðburði, leiksýningar, bíósýningar, íþróttaviðburði og einkasamkvæmi.
    • Kirkjuathafnir, svo sem giftingar, fermingar og aðrar trúarsamkomur.
    • Aðra sambærilega viðburði með fleiri en 20 einstaklingum.

Takmarkanir eiga ekki við börn fædd 2005 og síðar

Fjöldatakmörkun, almenn nálægðartakmörkun og grímuskylda á ekki við um börn fædd 2005 eða síðar.

Á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi mega ekki fleiri en 20 manns vera á sama tíma inni í sama rými. Tryggja skal að enginn samgangur sé milli rýma.

100 manns og allt að 200 manns mega vera í verslunum

Verslunum er heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu svo framarlega sem hægt sé að tryggja 1 metra á milli fólks. Verslanir sem eru yfir 1.000 m² að stærð mega hleypa til viðbótar einum viðskiptavini inn fyrir hverja 10 m² sem eru umfram þessa 1.000 m². Hámarksfjöldi viðskiptavina er þó alltaf 200.

50 manns mega vera við útfarir

Við útfarir mega allt að 50 manns vera viðstaddir.

Mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar um rými utanhúss og innandyra vegna COVID-19.

    • Almenn nálægðartakmörkun. Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi á að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Í starfsemi þar sem ekki er hægt að tryggja 1 metra fjarlægð milli einstaklinga þarf að nota andlitsgrímu sem hylur bæði nef og munn. Þetta á t.d. við í heilbrigðisþjónustu, á hárgreiðslustofum og nuddstofum, í innanlandsflugi og -ferjum, í leigubifreiðum og hópbifreiðum sem og í almenningssamgöngum. Mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar um notkun andlitsgríma.
    • Nálægðartakmörkun í skólum. Reglur um fjöldatakmörkun og nálægðartakmörkun gilda ekki um börn sem fædd eru árið 2005 og síðar. Takmörkun á skólastarfi tekur til leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, hvort sem um er að ræða opinbera eða einkarekna skóla. Þetta á einnig við um aðrar menntastofnanir, svo sem frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og íþróttastarf.
    • Starfsfólk á leikskólum og grunnskólum skal gæta 1 metra nándarreglu þegar andlitsgrímur eru ekki notaðar. Ekki mega vera fleiri en 30 einstaklingar fæddir 2004 eða fyrr í hverju rými. Þetta á einnig við um frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og íþróttastarf í grunnskólum.
    • Skólastarf á framhaldsskólastigi og háskólastigi er heimilt svo framarlega að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 1 metra fjarlægð sín á milli og hámarksfjöldi nemenda í hverri kennslustofu fari ekki yfir 30. Í sameiginlegum rýmum skóla er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndum hópa ef notaðar eru andlitsgrímur.
    • Nálægðartakmörkun í sviðslist, tónlist og við kvikmyndatökur. Snertingar og nálægð undir 1 metra eru heimil í sviðslistum, tónlist, við kvikmyndatökur og í sambærilegri starfsemi. Þar sem sérstök smithætta er fyrir hendi, svo sem á kóræfingum, skal eftir fremsta móti gætt að 1 metra nálægðartakmörkun og eftir atvikum viðhöfð meiri fjarlægð ef unnt er.
    • Heimilt er að hafa allt að 50 einstaklinga á sviði og 100 gesti í hverju rými á viðburðum að því gefnu að allir gestir sitji í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn. Gestir eiga að nota andlitsgrímu.
    • Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir. Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eiga að setja sér reglur um starfsemi sína, til að mynda um heimsóknir utanaðkomandi á heimilin og stofnanirnar.
    • Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu. Skemmtistaðir, krár og spilasalir eiga að vera lokaðir. Aðrir veitingastaðir, þar sem áfengisveitingar eru heimilaðar mega ekki hafa opið lengur en til 23.00 alla daga vikunnar og eiga að fylgja gildandi fjöldatakmörkun og nándarreglu. Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 23.00.
    • Nálægðartakmörkun í íþróttum. Snertingar eru heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 1 metra nálægðartakmörkun í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Hins vegar skal virða 1 metra nálægðartakmörkun í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu einnig virða 1 metra nálægðartakmörkun. Allt að 50 einstaklingum er heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum. Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum innandyra en utandyra mega allt að 100 áhorfendur mæta að því gefnu að þeir sitji í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn og noti andlitsgrímur. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda.
    • Þær íþróttagreinar sem ekki heyra undir ÍSÍ skulu setja sér leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og sambærilegar íþróttagreinar innan ÍSÍ.
    • Húsnæði líkamsræktastöðva eiga að vera lokaðar almenningi.
    • Gestafjöldi á sund- og baðstöðvum má vera helmingur af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda.

Verslanir, opinberar byggingar og aðrir staðir innandyra opnir almenningi þurfa að:

  • Sinna vel þrifum og sótthreinsun yfirborða eins oft og hægt er, sérstaklega algenga snertifleti eins hurðarhúna og handrið.
  • Tryggja aðgang að handsótthreinsi við innganga og í grennd við algenga snertifleti, s.s. snertiskjái, innkaupakerrur og afgreiðslukassa.
  • Minna almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum.

Heimilt er að sekta vegna brota á sóttvarnareglum

Sektarákvæði vegna brota sem tengjast nálægðartakmörkunum.

Sektarákvæði vegna brota sem tengjast samkomutakmörkunum, sóttkví og vegna einangrunar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2