fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirMaður á þrítugsaldri látinn eftir átök á bílastæði við Fjarðarkaup

Maður á þrítugsaldri látinn eftir átök á bílastæði við Fjarðarkaup

Fjórir eru í haldi vegna málsins

Fjórir eru í haldi Lögreglunnar höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á þrítugsaldri í Hafnarfirði í gær.

Lögreglu barst tilkynning á tólfta tímanum í gærkvöld um átök á bifreiðastæði við verslun Fjarðarkaupa við Hólshrauni.

Lögreglan hélt þegar á vettvang og fann þolandann, sem var fluttur á slysadeild og úrskurðaður þar látinn skömmu síðar.

Í kjölfarið voru fjórir aðilar handteknir í tengslum við málið. Rannsóknin er á frumstigi og lögreglan upplýsir að ekki verða veittar frekar upplýsingar um málið að svo stöddu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2