fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirMenning og mannlíf72 ár í dag síðan fyrsta bíósýningin var í Bæjarbíói - Nýdönsk...

72 ár í dag síðan fyrsta bíósýningin var í Bæjarbíói – Nýdönsk spilar í kvöld

Nýdönsk heldur tónleika - þá fyrstu á 30 ára starfsafmælinu

6. janúar árið 1945 var fyrsta kvikmyndasýningin í Bæjarbíói sem þá var eitt flottasta kvikmyndahús á Íslandi með 325 sæti. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar gaf þá öllum Hafnfirðingum kost á að sjá ókeypis kvikmyndasýningu í bíóinu 10. og 11. janúar það ár og voru sýningar kl. 3, 5, 7 og 9. Þess má geta að þetta var miðvikudag og fimmtudag. Segir að um 3.000 Hafnfirðingar hafi komið á þær 9 frísýningar sem í boði voru en þá var íbúafjöldi Hafnarfjarðar um 4.500.

Hljómsveitin Nýdönsk leikur á tónleikum í Bæjarbíói í kvöld kl. 20.30 en þar verður tímamótanna minnst.

Þetta eru fyrstu tónleikarnir sem nýta nýtt og fullkomið hljóð- og ljósakerfi sem komið hefur verið fyrir í Bæjarbíói. Nýdönsk fagnar 30 ára starfsafmæli árið 2017 og eru þetta fyrstu tónleikar þeirra á afmælisárinu. Á prógramminu verða mörg af þekktustu og vinsælustu lögum sveitarinnar.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2