fbpx
Fimmtudagur, janúar 30, 2025
HeimFréttirMenning og mannlífDraumey Aradóttir gefur út ljóðabók

Draumey Aradóttir gefur út ljóðabók

Út er komin ljóðabókin Brimurð, áttunda bók hafnfirska ljóðskáldsins og metsöluhöfundarins Draumeyjar Aradóttur.

Í tilkynningu segir að Brimurð sé tileinkuð dýravinum en bókin fjallar um sorgina sem verður þegar ferfættur ástvinur fer yfir í aðra vídd.

Lesendum er boðið í ljóðför um hugarheim hunds sem veit að hann á stutt eftir í þessu jarðlífi.

„Með síðustu tveimur ljóðabókum sínum, Varurð og Einurð, hefur Draumey Aradóttir markað sér bás meðal áhugaverðustu ljóðskálda á Íslandi,“ eru orð Soffíu Auðar Birgisdóttur bókmenntagagnrýnanda.

Útgáfuhóf verður haldið fimmtudaginn 6. febrúar kl. 17 í Norðurbakkanum, kaffihúsi þar sem Draumey mun lesa ljóð úr bókinni.

Útgefandi er bókaútgáfan Sæmundur.

Draumey Aradóttir er kennari, skáld og rithöfundur en hefur jafnframt lagt stund á heimspeki og lífsspeki. Hún er logophile – sú sem elskar orð, merkingu þeirra, vensl og uppruna.

Sköpunargleðin er henni í senn hamingja og ferðalag um innri víddir. Henni eru hugleikin tengsl hugar, tilfinninga og sálar og eru þau grunntónn flestra ritsmíða hennar.

Í verkum sínum býður Draumey lesendum gjarnan með sér í ferðir. Varurð (2022) var þannig ljóðför gegnum óttann og í Einurð (2024) fengu lesendur innsýn í hugarheim fósturs í móðurkviði.

BRIMURÐer áttunda bók höfundar. Að missa ástvin er upphafið að langri og ljúfsárri för gegnum sorg og söknuð, burtséð frá hvort vinurinn er tví- eða ferfættur eða hvaða tungumál hann notar til að tjá ást sína. Líf er líf. Ást er ást.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2