fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirMenning og mannlífEldri borgarar fá spjaldtölvur að láni frá Hafnarfjarðarbæ

Eldri borgarar fá spjaldtölvur að láni frá Hafnarfjarðarbæ

„Það eru ekki allir í þeirri stöðu að hafa stóra fjölskyldu í kringum sig sem sér til þess að félagslegri þörf og þörf fyrir samskipti og það að „hitta” einhvern sé uppfyllt,” segir Sjöfn Guðmundsdóttir deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustu á fjölskyldu- og barnamálasviði Hafnarfjarðarbæjar í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.

Hafnarfjarðarbær tók þá ákvörðun að afhenda hópi eldri borgara spjaldtölvur til notkunar á tímum Covid19. Þannig vill bærinn tryggja að tæknifærir og áhugasamir eldri borgarar og þeir sem vilja læra að nýta sér tæknina í samskiptum hafi tæki til þess og fái viðeigandi kennslu og leiðsögn.

Reglubundið skjáinnlit

Verkefninu fylgir ekki bara tækið sjálft heldur kennsla á tækið og stofnun á viðeigandi aðgangi þannig að hægt sé að koma á rafrænum samskiptum. Skype er fyrirfram sett upp á allar spjaldtölvurnar.

„Þannig getur hópurinn líka notað spjaldtölvuna til að heyra í fleirum í kringum sig með myndsímtali. Einnig til að skoða fréttir og jafnvel hlusta á hljóðbækur. Allt eftir þörf og löngun hvers og eins. Við aðstoðum við uppsetningu og kennslu á því sem þarf og áhugi er á,” segir Sjöfn. Gert er ráð fyrir að fyrstu spjaldtölvurnar verði afhentar nú fyrir páska og fleiri strax eftir páska. „Við erum að ná utan um hópinn sem vill tæki og vill nýta sér tæknina. Það er grunnskilyrði fyrir afhendingunni þannig að tryggt sé að tækið sé notað,“ segir Sjöfn að lokum.

Tilkynning frá fréttastofu Hafnarfjarðarbæjar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2