fbpx
Sunnudagur, nóvember 24, 2024
target="_blank"
HeimFréttirMenning og mannlífFanný Lísa heillaði tónleikagesti Hafnarborgar - Myndasyrpa

Fanný Lísa heillaði tónleikagesti Hafnarborgar – Myndasyrpa

Fanný Lísa Hevesi var gestur móður sinnar, Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda á vel sóttum hádegistónleikum Hafnarborgar í síðustu viku.

Fanný Lísa, sem er uppalin í Hafnarfirði, er nýútskrifuð úr Per­formance Preparation Academy í Bretlandi með BA-gráðu í söngleik.

Hún hóf tónlistarnám sitt í Tónlistar­skóla Hafnarfjarðar en lærði svo söng í Söngskóla Sigurðar Demetz. Hún útskrifaðist með framhaldspróf í klassískum söng með Sigrúnu Hjálm­týsdóttur sem kennara en fyrir það lærði hún söngleikjasöng hjá Valgerði Guðnadóttur og Þór Breiðfjörð. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum verkum og var meðlimur í barnakór Íslensku óperunnar þar sem móðir hennar var æfingapíanisti í langan tíma.
Þær mæðgur fluttu óperuleg söng­leikjalög og ýmiss konar óperuskotið og óperutengt efni.

Á gráu svæði

Yfirskrift tón­leikanna var „Mitt á milli – á gráu svæði“.

Fanný Lísa heillaði tónleikagesti með hressilegri framkomu og tærum söng og sem dæmi um ánægju gesta þá mátti sjá óperusöngkonuna Elínu Ósk Óskarsdóttur standa upp og klappa vel og lengi eftir eitt lagið.

Eigum við örugglega eftir að heyra meira frá þessari efnilegu söngkonu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2