fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirMenning og mannlífFjölbreytt starf eldri borgara

Fjölbreytt starf eldri borgara

Fjölbreytt vetrardagskrá kynnt

Félag eldri borgara í Hafnarfirði fagnar 50 ára afmæli sínu þann 26. mars n.k. og er því elsta félag á landinu sem tileinkað hefur starfsemi sína þeim sem eldri eru og farnir að huga að þeim tíma þegar draga fer úr þátttöku í atvinnulífinu. Að því tilefni er kynnt nýtt félagsmerki með dagskránni í ár.

Við stofnun fékk félagið nafnið Styrktarfélag aldraðra og var m.a. með að markmiði að efla velferð og tómstundir eldri borgara í bænum. Þegar það síðan hélt aðalfund á sínu 24. aldursári þann 12. mars árið 1992 höfðu félög með sömu áherslur verið stofnuð víðs vegar um land og landsamband um þau litið dagsins ljós. Fundurinn samþykkti að ganga til liðs við landsambandið, gera nafnabreytingu á félaginu og lagabreytingu í kjölfarið.

Valgerður Sigurðardóttir formaður

Valgerður Sigurðardóttir formaður FEBH segir einstaklega gott samstarf hafa alla tíð ríkt á milli félags eldri borgara í bænum og stjórnar Hafnarfjarðarbæjar. Skilningur og velvild stjórnenda hafi skilað markmiðum stofnenda með aukinni hagsæld fyrir íbúa bæjarins sem tilheyra aldurshópnum.

„Þá hefur bæjarstjórn séð um allan rekstur, mannahald og húsaleigu á félagsmiðstöðvunum Hraunseli, Hjallabraut 33 og að Sólvangsvegi 1. Sá stuðningur hefur skipt sköpum í félagsstarfinu.

Í Hafnarfirði bjuggu á árinu 2016, 28.189 íbúar og voru þar af 2.851 einstaklingur eldri en 67 ára. Það er því að mörgu að hyggja í stóru bæjarfélagi.“

Sameiginleg áhersla þeirra sem að starfinu koma eru lífsgæði aldurshópsins

FEBH logo

Það eru stoltir félagar sem kynna glæsilega dagskrá fyrir komandi starfsár. Hver félagsmiðstöð er kynnt sérstaklega og vakin er athygli á fjölbreyttari dagskrá að Hjallabraut 33 og kemur það til vegna rýmri aðstöðu þar en áður.

Þá er vakin athygli á því að allar aðrar skemmtanir, þorrablót eða námskeið sem ekki eru tiltekin og ákveðið verður að halda seinna á starfsárinu verða auglýst sérstaklega.

Nefndir innan félagsins eru 12. Þar starfa hátt í hundrað manns að því að auðga lífið með dansi, göngum, lestri, spili, sundi, söng og annarri huglægri og líkamlegri næringu. Hugmyndaauðgi er þar í fyrirrúmi.

„Starfsfólki og félagsmönnum vil ég þakka gott samstarf og það óeigingjarna og ómetanlega framlag þeirra til að gera öflugt félagsstarf enn betra og koma á þann hátt á móts við þarfir og væntingar eldri borgara í Hafnarfirði.

Ég hvet alla þá sem hafa tækifæri til að koma eða hafa samband og sjá hvort að þeir finni sér ekki eitthvað við hæfi.

Gleðjumst saman yfir framtaki framsýnna forystumanna, njótum fjölbreytileikans í tómstundum og fögnum á komandi vori 50 ára afmæli hagsmunagæslu eldri borgara í bænum,“ segir Valgerður Sigurðardóttir formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði.

Dagskrá Félags eldri borgara 2017-2018

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2