fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirMenning og mannlífFugl dagsins í samkomubanninu

Fugl dagsins í samkomubanninu

Meðan á samkomubanni stendur mun samtökin Fuglavernd birta eina færslu á dag um fugls dagsins á Facebook síðu sinni.

„Lóan er komin að kveðja burt snjóinn, svo okkur fannst alveg tilvalið að byrja á henni,”  segir Dögg Matthíasdóttir, markaðs- og samskiptafulltrúi Fuglaverndar.

Lóan er ein af 25 ábyrgðartegundum okkar Íslendinga, en það þýðir að um 20% af
Evrópustofni viðkomandi tegundar nýti Ísland til varps eða komi hér við á ferðum sínum.

„Með þessu viljum við leggja okkar af mörkum, til að stytta fólki stundir og kannski aðeins að dreifa huganum, þó ekki sé nema í stutta stund á hverjum degi. Ef samkomubannið stendur fjórar vikur þá komumst við yfir 28 fuglategundir alls, við þurfum þá að velja einhverjar þrjár sem eru ekki í hópi ábyrgðartegunda. Hægt verður að koma með ábendingar á Fésbókarsíðunni. Ef samkomubannið stendur lengur, þá finnum við bara til fleiri fuglategundir, það er af nógu að taka”.

Vefurinn www.fuglavernd.is er alltaf opinn og pantanir í vefverslun verða afgreiddar og
afhentar eftir samkomulagi við viðskiptavini.

Fuglavernd eru frjáls félagasamtök um verndun fugla og búsvæði þeirra. Fuglavernd telur
um 1300 félagsmenn. Fuglavernd er aðili að samtökunum BirdLife International sem vinna
að verndun fugla og náttúrusvæða í 120 löndum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2