fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimÁ döfinniHafnarfjörður í augum listamanna

Hafnarfjörður í augum listamanna

Hafnarfjörður - verk úr safneign opnuð í aðalsal Hafnarborgar laugardaginn 28. nóvember

Á morgun, laugardaginn 28. nóvember, verður sýningin Hafnarfjörður – verk úr safneign opnuð í aðalsal Hafnarborgar.

Jófríðarstaðir og Hafnarfjörður, mynd eftir Eyjólf J. Eyfells

Það er ekki bara Hafnfirðingum sem þykir Hafnarfjörður fallegur, heldur hefur samspil byggðarinnar og hraunsins í Hafnarfirði sömuleiðis heillað marga listmálara í gegnum tíðina.

Suðurgatan eftir Gísla Jónsson
Suðurgatan eftir Gísla Jónsson. Lengst t.v. er Suðurgata 39, þá nr. 37 svo nr. 33 og nr. 31

Í safneign Hafnarborgar eru fjölmörg verk sem tengjast bænum, þau elstu frá því snemma á 20. öld. Nú er leitað í þennan fjársjóð og Hafnfirðingum og gestum þeirra gefið tækifæri til að sjá hvernig staðarandi bæjarins birtist í myndlistarverkum frá því á síðustu öld.

Mynd eftir Jón Þorleifsson

Hér má sjá bæinn í gegnum augu listamanna, þar á meðal helstu meistara íslenskrar myndlistar. Meðferð þeirra á viðfangsefninu er hefðbundin, fígúratíf nálgun þar sem þekkja má fyrirmyndina úr veruleikanum.

Mynd eftir Jón Engilberts
Mynd eftir Jón Engilberts

Hafnarfjörður er einstaklega myndrænn bær og náttúran umhverfis býður einnig upp á mikilfengleg sjónarhorn. Fyrir utan Reykjavík eru fáir þéttbýlisstaðir á Íslandi myndefni jafn margra listaverka og Hafnarfjörður. Verkin sem nú eru sýnd eru mörg úr stofngjöf hjónanna Ingibjargar Sigurjónsdóttur og Sverris Magnússonar sem ráku apótek í húsnæði Hafnarborgar um áratuga skeið. Hluti verkanna hefur undanfarin ár hangið í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.

Mynd eftir Gunnlaug Scheving en hann bjó um tíma í Hafnarfirði.

Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru Nína Tryggvadóttir, Hörður Ágústsson, Jóhannes Kjarval, Jón Gunnarsson, Gréta Björnsson og Jón Engilberts.

Mynd eftir Finn Jónsson en er nær örugglega ekki úr Hafnarfirði.

Þessi sýning varð til á stuttum tíma þegar ákvörðun var tekin um að fresta fyrirhugaðri sýningu á verkum Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar vegna samkomutakmarkana.

Mynd eftir Jón Engilberts

Gunnlaugur Scheving og kvart kíló af skyri

Til gamans er svo birt hér skemmtileg frásögn Gunnlaugs Schevings þegar hann fór í mjólkurbúð í Hafnarfirði og bað um kvart kíló af skyri.

Úr viðtali við RUV um 1966 en tengist ekki sýningunni í Hafnarborg.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2