fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirMenning og mannlífHarry Potter dagur á Bókasafni Hafnarfjarðar

Harry Potter dagur á Bókasafni Hafnarfjarðar

Sumarlestur í Bókasafninu

Þann 26. júní síðastliðinn voru liðin 20 ár frá útgáfu fyrstu bókarinnar um Harry Potter. Af því tilefni var mikið um dýrðir á Bókasafni Hafnarfjarðar. Bækurnar um frægasta galdrastrák heims voru settar í útstillingu. Gestum bauðst að föndra Hedwig- og/eða Fawkes-skutlur á barna- og unglingadeildinni. Hægt var að skoða bókarkafla úr Harry Potter bókunum á yfir 10 tungumálum.

Mest var lagt í sérstakan helkrossa-, Harry Potter-þematengdan ratleik um allt bókasafnið. Það var líf og fjör á safninu allan daginn og þátttakan í ratleiknum einstaklega góð.

Styrmir Snær hneppti hnossið í ratleiknum og hlaut hann þessa glæsilegu Harry Potter litabók að launum.

Starfsfólk Bókasafnsins þakka öllum sem lögðu leið sína á safnið á þessum skemmtilega degi og hvetja alla krakka sem farnir eru að lesa sjálfir til þess að skrá sig til leiks í sumarlestri Bókasafns Hafnarfjarðar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2