Penninn Eymundsson hefur hrundið af stað átakinu „Knús í kassa“ sem ætlað er að hlúa að eldri kynslóðinni sem hefur takmarkaða nærveru yngri kynslóðarinnar og sinna nánustu ættingjum nú á tímum kórónaveirunnar.
Sara Magnúsdóttir er hugmyndasmiðurinn á bak við átakið sem fer af stað í dag í verslunum Pennans Eymundsson og stendur til 10. maí.
„Ég er svo heppin að eiga fimm barnabörn sem gera mikið af því að teikna þegar þau eru í heimsókn hjá mér og myndir þeirra gleðja mig sannarlega. Það er hluti af því að ég fékk hugmynd um að leyfa eldra fólki á þessum covid-tímum að njóta þeirra mynda sem börn þessa lands teikna heima, nú eða í leikskólum og grunnskólum,“ segir Sara Magnúsdóttir sem er hugmyndasmiðurinn á bak við verkefnið.
Er öllum börnum landsins á leik- og grunnskólaaldri boðið að teikna fallegar hugsanir til þeirra sem dvelja á hjúkrunarheimilum landsins.
Er tekið á móti knús teikningum í verslunum fyrirtækisins til og með 10. maí og verða kassar þá fullir af knústeikningum afhentir hjúkrunarheimilunum.
Allt sem þarf eru litir, blað, falleg hugsun og koma svo teikningunni í verslanir Pennans Eymundsson í sérstaka knúskassa.
Starfsfólk Pennans Eymundsson á Strandgötunni í Hafnarfirði tekur að sjálfsögðu vel á móti börnum sem þangað koma með teikningar.