Það var kuldalegt á Thorsplani í morgun og ekkert sem benti til þess að sumarbyrjun væri á morgun. Það var þó ekkert kuldalegt við börnin sem þangað voru mætt frá grunnskólum bæjarins til að syngja inn Bjarta daga. Gleðin skein úr andlitum þeirra og þau sungu hástöfum með í flestum lögum. Hafði þeim verið launaður greiðinn með Svala og kexi en eftir sönginn hurfu börnin aftur til sinna skóla.
Heiðar Örn Kristjánsson spilaði á gítar og stjórnaði söngnum en með þessum söng var menningarhátíðin Bjartir dagar sett.
Næsti liður í hátíðinni verður kl. 16.30 er töframaðurinn Einar einstaki sýnir listir sínar í Bókasafninu.