Þann 25. maí sl. afhenti Lionsklúbburinn Kaldá gjafir til Heilsugæslunnar í Firði, blóðþrýstingsmæli á standi og tvær ungbarnavogir.
Yfirlæknir stöðvarinnar Guðrún Gunnarsdóttir og Thelma B. Árnadóttir fagstjóri hjúkrunar tóku á móti gjöfunum en formaður klúbbsins, Elísabet Guðmundsdóttir og formaður verkefnanefndar, Jórunn Jörundsdóttir afhentu gjafirnar.
Lionsfélagar í Kaldá þakka bæjarbúum fyrir stuðning á liðnum árum.