fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirMenning og mannlífNýir rekstraraðilar að Bæjarbíói

Nýir rekstraraðilar að Bæjarbíói

Samningaviðræður við nýja aðila eftir mat á umsóknum

Menningar- og ferðamálanefnd samþykkti á fundi sínum í morgun að ganga til samningaviðræðna við Pál Eyjólfsson í Prime og Pétur Stephensen um umsjón og rekstur Bæjarbíós 2016-2019.

Það er því ljóst að núverandi rekstaraðilar hafa ekki hlotið náð fyrir augum hjá nefndinni.

Aðeins þrír aðilar sóttu um að sjá um rekstur menningarstarfsemi í Bæjarbíó en rekstraraðilar fá Bæjarbíó leigulaust.

Þeir sem sóttu um voru auk Páls og Pétur, Kristinn Sæmundsson sem sér um reksturinn í dag og Hjörtur Howser tónlistarmaður.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2