fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimLjósmyndirNýtt glæsilegt listgallerí opnað á Lækjargötu með sýningu eigandans - MYNDIR

Nýtt glæsilegt listgallerí opnað á Lækjargötu með sýningu eigandans – MYNDIR

Kristján Árni Baldvinsson hefur opnað listgalleríið Gallerí Gafl - Listhús við Lækinn

Það var stór stund þegar nýtt listgallerí var opnað í Hafnarfirði sl. föstudag að Lækjargötu 34C. Hafnfirskir listamenn og aðrir sem vilja sýna í Hafnarfirði hafa ekki haft marga möguleika og því kærkomið að fá nýtt listagallerí í bæinn.

Gallerí Gafl – Listhús við Lækinn

Um 200 manns komu á opnun gallerísins „Gallerí Gafl – Listhús við Lækinn“ en opnunarsýningin var sýning á listaverkum eigandans, Kristjáns Árna Baldvinssonar.

Kristján Árni Baldvinsson listamaður og eigandi gallerísins

Kristján Árni hefur greinilega lagt mikið í nýja húsnæðið, marmari í stórum flekum er á gólfum og sérhönnuð vönduð lýsing.

„Það var stór stund að opna eigið gallerí og sýningu um leið en þetta hefur verið nokkuð langur aðdragandi. Ég keypti húsnæðið 2014 og stóðu breytingar á húsnæðinu yfir í um tvö ár, en ég hef verið að vinna að þessari sýningu meira og minna síðan. Þetta húsnæði er um leið vinnustofa mín, en er samt sérstaklega hannað með sýningar í huga. Það var mjög ánægju­legt að fá svo marga góða gesti og ég er afar ánægður með hvernig til tókst. Það sem komið hefur hvað mest á óvart er hversu margir myndlistarmenn hafa komið að máli við mig sem hafa áhuga á að halda sýningar í þessu húsnæði,“ segir listamaðurinn sem á langan feril að baki í myndlist.

Hann segist ekki hafa endanlega ákveðið hvernig fyrirkomulag á rekstrinum verður en reiknar með að leigja listamönnum salinn til sýningar auk þess sem mögulega geti verið settar upp aðrar sýningar þar.

Manákvæmlega hvenær myndlistar­áhuginn vaknaði

„Það er svolítið merkilegt að ég skuli muna nákvæmlega hvenær myndlistar­áhugi minn vaknaði, en það var 20. nóvember 1973 ég þá nýorðinn tvítugur. Ég var á gangi í Hafnarstrætinu í Reykjavík og varð litið inn um búðarglugga þar sem ég sá málverk sem heillaði mig það mikið að ég fór inn og spurðist fyrir um þetta málverk. Mér var tjáð að Kristján Davíðsson væri með myndlistarsýningu í búðinni. Sama dag keypti ég mér striga, olíuliti og pensla og byrjaði að mála. Síðan eru liðin 45 ár og ég verið að mála allan tímann síðan, með hléum þó. Ég hef alla tíð verið heillaður af óhlutbundinni list. Ég velti aldrei fyrir mér hvað ég sjái út úr málverkinu heldur hvaða áhrif það hefur á mig,“ segir Kristján.

Sýning Kristján verður opin klukkan 16-18 virka daga og klukkan 14-17 um helgar.

Svipmyndir frá opnuninni

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2