Menningar- og ferðamálanefnd samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja til við bæjarráð að gengið verði til samninga við þá Pétur Ó. Stephensen og Pál Eyjólfsson um rekstur Bæjarbíós.
Er þetta í annað sinn sem gengið er til samninga við tvímenningana en Hafnarfjarðarbær sleit viðræðum án þess að láta þá vita um afstöðu sína og fréttu þeir um viðræðuslitin hjá blaðamanni Fjarðarfrétta.
Pétur Ó. Stephensen var að vonum ánægður með niðurstöðuna er blaðamaður færði honum fréttirnar rétt í þessu. Sagðist hann hlakka til samstarfsins og sagði aðspurður að enginn eftirmáli yrði af þessum sérkennilegu viðræðuslitum.