Sl. laugardag, á sjálfri sjómannadagshelginninnadagshelginni, var líf og fjör í góða veðrinu í leikskólanum Norðurbergi. Árleg sumarhátíð var í leikskólanum og að auki fékk leikskólinn afhentan Grænfánann í sjöunda skiptið fyrir viðurkenningu á umhverfisstefnu leikskólans. Fulltrúi frá Landvernd, Katrín Magnúsdóttir, afhenti umhverfisráði barna fánann og gengu þau, ásamt gestum, fylktu liði að fánastöng leikskólans og hífðu fánann upp. Margt var um manninn og nutu sín allir í veðurblíðunni enda margt í boði s.s. tónlist, myndlist, vöfflur og gróðursetning.
Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða um heim sem tákn um góða umhverfismennt og umhverfisstefnu í skólum. Fánann fá skólar í kjölfar verkefna sem eru ætluð til að efla vitund nemenda, kennara og fjölskyldna um umhverfismál.
Neysla – plastneysla
Að sögn Önnu Sigurborgar Harðardóttur leikskólastjóra vann leikskólinn sl. vetur með þemað „Neysla/plastneysla“. „Markmið verkefnsins var að lágmarka alla notkun á plasti í daglegu lífi okkar og gera börn og fullorðna meðvitaðri um skaðsemi þess fyrir umhverfið,“ segir Anna. Allir aldurshópar unnu í margs konar verkefnum yfir veturinn. Starfsmenn elstu barnanna fóru í samstarf við heimili barnanna með lítið heimaverkefni. Öll börnin fengu gefins fjölnota innkaupapoka (þökk sé Sorpu) og fóru með hann heim ásamt lýsingu fyrir foreldrana í hverju verkefnið fælist. Þau áttu að safna öllu plasti sem kæmi inn á heimilið í þrjá daga og setja í pokann og koma með hann í leikskólann á fjórða degi. Hópurinn hittist, fóru yfir það sem kom í pokann og tróðu því í plexiglerkassa öllum til sýnis. „Við viktuðum herlegheitin og komumst að því að hver fjölskylda skilaði frá sér rúmlega 29 kg af plasti á ári hverju!,“ segir Anna.
4 tonn af plasti á ári
„Í leikskólanum eru 137 fjölskyldur og þessar fjölskyldur láta því frá sér samanlagt 4 tonn af plasti á ári! Óhugguleg tala og sérlega í ljósi þess að plast eyðist ekki í jarðvegi og er veruleg ógnun við lífríkið og náttúruna. Hluti af verkefni vetrarins var að ræða hvað gæti komið í staðinn