Hátíðarhöldin á sumardeginum fyrsta var með hefðbundnum hætti í Hafnarfirði og hófst með Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar eins og sagt er frá hér.
Skátafélagið Hraunbúar var með skátaguðsþjónustu í Víðistaðakirkju og þaðan var haldið í skrúðgöngu í miðbæinn með fánabera skátanna í fararbroddi og lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Á Thorsplani var skemmtidagskrá á sviði, hoppukastalar, andlitsmálun og fleira í boði og var þátttaka ágæt.
Hér má sjá myndir frá deginum sem ljósmyndari Fjarðarfrétta tók.