Það stefnir í stórglæsilega tímamótatónleika í Íþróttahúsinu við Strandgötu á morgun, laugardag kl. 14 og 16.
Þar syngja bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson með Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sem er að koma fram á sínum fyrstu stórtónleikum en tónleikarnir nefnast Bræðralag.
Þátttakendur eru: Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Rytmaband úr Tónkvísl, Unglingakór Lækjarskóla, Danshópur úr Lækjarskóla, Forskóli 2 og nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar. Á annað hundrað flytjendur á aldrinum 8 ára til rúmlega tvítugs flytja 11 lög þeirra bræðra í útsetningu kennara tónlistarskólans.
Við litum við á æfingu í íþróttahúsinu í dag þar sem Friðrik Dór var að æfa með hópnum og stefnir í gríðarlega spennandi tónleika.
Ekki missa af þessu.
Miðaverð fyrir 12 ára og yngri er 1.500 kr. og 2.500 kr. fyrir 13 ára og eldri.
Miðasala á www.tix.is