Slökkvilið og sjúkralið var kallað að gömlu húsi á Suðurgötu á tíunda tímanum í kvöld.
Eldur virðist þó hafa verið lítill en skv heimildum Fjarðarfrétta var einstaklingur fluttur í burtu á sjúkrabíl, brenndur á höndum. Áhyggjufullir nágrannar hópuðust að en létti verulega þegar þeir sáu engan eld og að rólegt var yfir viðbragðsaðilum.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Sudurgata-eldur-3-1024x636.jpg)
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Sudurgata-eldur-2-1024x618.jpg)