Gatnamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar voru formlega tekin í notkun í dag. Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra klippti á borða á gatnamótunum og fékk aðstoð fyrrverandi samgönguráðherra, Jóns Gunnarssonar, Hreins Haraldssonar vegamálastjóra, Guðlaugar Kristjánsdóttur forseta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og Rósu Guðbjartsdóttur formanns bæjarráðs. Í hvorn enda borðans héldu forstjórar Loftorku og Suðurverks, aðalverktaka að verkinu.

Um Reykjanesbraut á þessum stað fara 15 þúsund bílar á dag og um 6 þúsund um Krýsuvíkurveg eða um 21 þúsund bílar daglega í allt.

Verkið hefur gengið mjög hratt en byrjað var á verkinu í mars sl. Ýmis konar frágangsvinnu á þó eftir að vinna og verður lokið við þá vinnu á vormánuðum 2018.
Gerðar voru breytingar á Krýsuvíkurvegi, gerð tengivegar að Suðurbraut sem tengir Hvaleyrarholtið við Vellina og tengivegar að Selhellu sem var sérstaklega gerð vegna óskar Icelandair. Einnig tilheyrir verkinu gerð göngu- og hjólastígs meðfram Suðurbrautartengingu og hraðatakmarkandi aðgerðir á Suðurbraut. Þá er gerð hljóðmana við Reykjanesbraut í Hafnarfirði hluti verksins. Var notað efni frá gerð mislægu gatnamótanna í það verk. Þá eru innifaldar í verkinu breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja og landmótun.
Heildarkostnaður er áætlaður um 1.100 milljónir kr.
Við athöfnina ávarpaði Sigurður Ingi Jóhannsson viðstadda og fagnaði þessum tímamótum sem hann sagði mikilvægan þátt í að bæta umferðaröryggi á Reykjanesbraut og í sama streng tók Jón Gunnarsson f.v. ráðherra sem kom verkinu í gang og Hreinn vegamálastjóri. Sérstaklega var getið hversu vel verkið gekk og vel að öllu staðið og öllum til fyrirmyndar.

Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fagnaði einnig verkinu í kaffisamsæti á eftir en þrýsti jafnframt á að tvöföldun Reykjanesbrautar frá kirkjugarðinum að nýju gatnamótunum yrði lokið sem allra fyrst og aðgerðum við lagfæringu á gatnamótum við Kaplakrika og Lækjargötu.

Aðalverktakar eru Loftorka Reykjavík ehf. og Suðurverk hf.
Helstu undirverktakar eru:
- Skrauta ehf., brúarsmíði
- BM Vallá ehf. útvegaði og framleiddi steinsteypu í verkið
- Malbikunarstöðin Hlaðbær-Colas framleiddi malbik í verkið
- Elektrus ehf., með rafmagn í veglýsingu
- Véltækni ehf., með steypu kantsteins
- Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðar og veitufyrirtækja.
Hönnun mannvirkis:
- Studio Granda ehf. – útlit og frágangur steyptra mannvirkja.
- Landslag ehf. – landslagsarkitektar – útlit og frágangur lands við mannvirki.
- Eftirlit er á vegum VSÓ Ráðgjöf ehf.