Vegna vinnu við vatnsveitulögn á Kaldárselsvegi má búast við einhverjum truflunum á afhendingu neysluvatns í Hafnarfirði frá kl. 20 í dag miðvikudag og fram eftir morgni og jafnvel frameftir degi fimmtudag.
Vonir standa til þess að engar truflanir verði á afhendingu vatns en til öryggis er íbúum og fyrirtækjum bent á að passa sérstaklega upp á að skrúfað sé fyrir alla krana og að viðkvæm tæki séu ekki í gangi.
Bendt á neyðarsíma vatnsveitu utan opnunartíma þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar. Neyðarsími er 664 5646.
Þjónustuver er opið frá kl. 08 – 16.