Nú býðst Hafnfirðingum sem og öðrum lögmannsþjónusta hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar sem er ný og framsækin lögmannsstofa að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði.
Eigandi stofunnar er Elísabet Pétursdóttir lögmaður, sem starfaði í tæpan áratug í Stjórnarráðinu áður en hún opnaði lögmannsstofu í heimabyggð. Framkvæmdarstjóri stofunnar er Sigmundur Ingi Sigurðsson, lögfræðingur.
Á stofunni er veitt alhliða lögfræðiþjónusta og ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og félaga, þar á meðal húsfélaga. Á stofunni er mikil sérfræðiþekking á ýmsum málaflokkum, svo sem á mannréttindum, stjórnsýslurétti, fjölskyldurétti, barnarétti, vinnurétti o.fl.
„Ástæða þess að við fórum í þennan rekstur er að okkur langaði til að starfa við það sem við gerum best í heimabyggð. Í mínum huga er áríðandi að Hafnfirðingar geti sótt alla helstu þjónustu í bænum, þar á meðal lögmannsþjónustu. Hlutverk lögmanna í samfélaginu er mikilvægt. Kynslóðirnar á undan okkur og þar á undan hafa boðið upp á þessa þjónustu hér í bænum og að mínu mati er mikilvægt fyrir ört stækkandi bæjarfélag að hér starfi öflugar lögmannsstofur,“ segir Elísabet um aðdraganda ákvörðunarinnar að opna lögmannsstofu í bænum.
Allar frekari upplýsingar um þá þjónustu sem Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar býður upp á má finna á vefsíðunni loghaf.is.