fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirNýjar sóttvarnarreglur frá 20. október - íþróttir fá sér meðferð

Nýjar sóttvarnarreglur frá 20. október – íþróttir fá sér meðferð

Íþróttaiðkun með snertingu leyfð utan höfuðborgarsvæðisins

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í meginatriðum þær breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem kveðið verður á um í reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi þriðjudaginn 20. október. Breytingarnar eru að mestu þær sömu og sóttvarnalæknir leggur til. Ráðherra kynnti breytingarnar og minnisblað sóttvarnalæknis á fundi ríkisstjórnar í gær.

Það vekur athygli að aðrar reglur munu gilda um íþróttir en almenna atburði, sérstaklega utan höfuðborgarsvæðisins. Á meðan strangar reglur mun gilda um númeruð sæti með skráningu á nafn á almennum viðburðum þar sem hámark 20 manns mega vera í hólfi verða íþróttir með sömu fjöldatakmörkunum leyfðar með snertingu! Mun þetta þó aðeins gilda utan höfuðborgarsvæðisins, en innan höfuðborgarsvæðisins verða engar íþróttir með snertingu heimilaðar.

Áfram verður kveðið á um strangari takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu en gilda á landsvísu. Utan höfuðborgarsvæðisins verður gerð sú meginbreyting að nándarmörk milli einstaklinga verða aukin úr 1 metra í 2.

Eftirfarandi eru upplýsingar um helstu breytingar sem verða á sóttvarnaráðstöfunum frá og með þriðjudeginum 20. október. Upplýsingarnar eru settar fram með fyrirvara um mögulegar breytingar á útfærslu einstakra þátta í reglugerð sem unnið er að í heilbrigðisráðuneytinu.

Takmarkanir utan höfuðborgarsvæðisins – helstu breytingar:

  • Nándarmörk milli einstaklinga verða 2 metrar.
  • Skylt verður að nota andlitsgrímur þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra nándarmörk, m.a. í verslunum.
  • Á viðburðum verður einungis heimilt að hafa 20 gesti í hólfi í hverju rými sem skulu sitja í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn.
  • Engir áhorfendur mega vera á íþróttaviðburðum, hvorki innan- né utandyra.
  • Íþróttaiðkun, einnig sú sem krefst snertingar eða mikillar nálægðar, verður heimil, jafnt innan- og utandyra.
  • Líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar.

Takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu – helstu breytingar:

  • Allt íþrótta- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri sem krefst snertingar verður óheimilt.
  • Skólasund verður óheimilt.
  • Íþróttaiðkun sem ekki krefst snertingar verður heimil en fjöldi þátttakenda má að hámarki vera 20 einstaklingar og 2 metra nándarmörk skulu virt. Engir áhorfendur mega vera viðstaddir.
  • Æfingar og keppni í íþróttum sem krefjast snertingar verða óheimilar, innan húss og utan, jafnt hjá börnum og fullorðnum.

Óbreyttar reglur um skólastarf

Sóttvarnalæknir leggur ekki til neinar breytingar á gildandi sóttvarnaráðstöfunum í skólastarfi og verður gildistími reglugerðar þar að lútandi því framlengdur.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2