fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirNýr hljóðkútur á löndunarkrana álversins

Nýr hljóðkútur á löndunarkrana álversins

Settur upp til að svara gagnrýni íbúa um hávaða

Þann 1. nóvember var nýr hljóðkútur settur á súrálslöndunarkrana álvers RioTinto í Straumsvík. Þess má vænta að hávaði frá krananum minnki í kjölfarið, en hann er notaður í fáeina daga í mánuði til að landa súráli sem kemur með skipi til Straumsvíkur.

Hljóðkúturinn hífður á sinn stað
Hljóðkúturinn hífður á sinn stað

Fyrsta löndun eftir að þessar umbætur voru gerðar hófst þriðjudaginn 8. nóvember og gefur góðar vísbendingar um að breytingin hafi heppnast vel. Hljóðmælingar verða gerðar í kjölfarið til að staðfesta það.

Kostnaður við verkefnið var um 15 milljónir króna. Eldri hljóðdeyfirinn, sem nú hefur verið skipt út, var kominn til ára sinna og hættur að virka sem skyldi.

Á dagskrá er að kaupa nýjan löndunarkrana en ákveðið var að ráðast engu að síður í þessa fjárfestingu til að brúa bilið, svo að tryggt væri að hljóðstig í íbúabyggð færi örugglega aldrei yfir leyfileg mörk. Útreikningar bentu til að það gæti verið á mörkunum við ákveðin skilyrði.

Í tilkynningu frá RioTinto segir að þess beri að geta að hávaði við lóðamörk álversins hefur ávallt verið undir viðmiðunarmörkum í starfsleyfi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2