fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirAtvinnulífNýr mannauðsstjóri ráðinn hjá Hafnarfjarðarbæ

Nýr mannauðsstjóri ráðinn hjá Hafnarfjarðarbæ

Tuttugu umsóknir bárust um starfið

Kristín Sigrún Guðmundsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar.

Kristín Sigrún er með B.Ed. gráðu í uppeldis- og menntunarfræði og MA gráðu í mannfræði frá Danmörku auk diplóma í stefnumiðaðri mannauðsstjórnun. Síðasta ár hefur hún starfað sem mannauðssérfræðingur hjá EFLU og var áður hjá Reykjavíkurborg þar sem hún sinnti fyrst starfi sérfræðings og síðar starfi mannauðsstjóra þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Í sex ár þar áður var Kristín sjálfstætt starfandi stjórnendaráðgjafi þar sem hún tók m.a. að sér verkefni sem mannauðsstjóri til leigu í Bretlandi, á Möltu og víðar.

Starf mannauðsstjóra Hafnarfjarðarbæjar var auglýst laust til umsóknar í byrjun nóvember og bárust alls 20 umsóknir um starfið.

Kristín mun hefja störf við fyrsta tækifæri eða í síðasta lagi um mánaðamót mars og apríl.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2