fbpx
Föstudagur, janúar 17, 2025
HeimFréttirÖll framkvæmdaleyfi Suðurnesjalínu 2 í höfn

Öll framkvæmdaleyfi Suðurnesjalínu 2 í höfn

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Hraunavina, Landverndar,  Landgræðslu- og umhverfisverndarsamtaka Íslands og Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands um að fella úr gildi  ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga frá 30. júní 2023 að veita Landsneti  framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2.

Úrskurðarnefndin felldi þennan úrskurð 25. janúar sl. og má lesa hann hér.

Þar með eru öll framkvæmdaleyfi á línuleiðinni í höfn og samið hefur verið við stærsta hluta landeigenda en hjá ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsmála liggur fyrir beiðni um heimild til eignarnáms á hluta þriggja jarða sem línan liggur um og ósamið er við.

Í tilkynningu frá Landsneti segir að undirbúningur fyrir framkvæmdir gangi vel og fram undan sé að bjóða út efni í loftlínur en innkaupum á jarðstreng er lokið.

„Ef allt gengur að óskum verður jarðvinna boðin út i vor og framkvæmdir við þessu mikilvægu línu, Suðurnesjalínu 2, munu hefjast síðsumars,“ segir í tilkynningunni.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2