Páskahátíðin stendur nú yfir, mesta hátíð kristinnar kirkju þegar minnst er krossfestingar Jesú Krists sem tók á sig syndir mannanna, og upprisu hans á þriðja degi.
Helgihald í kirkjum landsins tekur mið af hinni miklu hátíð en minnst var á skírdag hinnar síðustu kvöldmáltíðar Krists með lærisveinum sínum.
Í fyrramálið verður upprisunnar minnst í páskamessum kl. 8 árdegis í öllum stærstu kirkjum bæjarins og boðið upp á morgunkaffi eða kakó að messum loknum.
Ath. Messan í Víðistaðakirkju er líka kl. 8 en ekki kl. 11 eins og misritaðist í auglýsingu í Fjarðarfréttum.