fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirPétur Gautur er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023

Pétur Gautur er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023 er Pétur Gautur Svavarsson myndlistarmaður.

Þetta var tilkynnt í Hafnarborg fyrir skemmstu.

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Pétur Gautur

Pétur Gautur hefur unnið af krafti að list sinni síðan hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Portinu í Hafnarfirði árið 1993. Hann byrjaði ungur að læra á krakkanámskeiðum í Myndlista- og handíðaskólanum. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund fór hann aftur í Myndlista- og handíðaskólann og lauk lokaprófi þaðan árið 1991. Þá lærði Pétur leikmyndagerð í gamla konunglega leiklistarskólanum Statens Teaterskole í Kaupmannahöfn í Danmörku og las listasögu við Háskóla Íslands. Hann hefur verið atkvæðamikill kyrralífsmálari í yfir þrjátíu ár og verk hans eru landsmönnum vel kunn, en hann er helst þekktur fyrir uppstillingar sínar þar sem jafnan koma við sögu ávextir eða blóm.

Yfir 30 ára ferill

Pétur Gautur hefur unnið af krafti að list sinni í yfir þrjátíu ár bæði á Íslandi og í Danmörku. Hann hefur haldið á þriðja tug einkasýninga hérlendis og í Danmörku og Svíþjóð. Þá hefur hann tekið þátt í nokkrum samsýningum. Pétur Gautur opnaði einkasýningu í Hafnarborg á 34 ára afmælisdaginn sinn árið 2000 og aðra sýningu á fertugsafmælinu sínu sex árum síðar. Á sýningunni voru áður óbirt verk og bar sýningin yfirskriftina „Uppstillingar með skálum og fleira“ en „skálin“ hefur orðið að einskonar vörumerki Péturs til fjölda margra ára án þess að hann hafi ætlað sér það. Uppstillingar eru klassískt mótíf í listasögunni sem Pétur Gautur hefur kannað og leikið sér að í gegnum ferilinn. Skálin þróaðist frá því að Pétur var í abstraktinu þegar hann var að byrja og var mikið í hringlaga formum sem þróuðust smátt og smátt í þessa skál á dúkuðu borði og svo ávextir og slíkt. Pétur Gautur er vel þekktur fyrir þessar tímalausu kyrralífsmyndir sínar og ferskt litaval. Hann trúir á einfaldleikann og notar oft óhefðbundna, en vel valda liti í myndir sínar.

Pétur Gautur er með vinnustofu á horni Njálsgötu og Snorrabrautar í Reykjavík.

Fyrri bæjarlistamenn Hafnarfjarðar

  • Björn Thoroddsen, bæjarslitamaður Hafnarfjarðar 2022, sýndi listir sínar við upphaf athafnarinnar í dag.

    2022 – Björn Thoroddsen, gítarleikari

  • 2021 – Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður
  • 2020 – Bergrún Íris Sævarsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari
  • 2019 – Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri
  • 2018 – Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður
  • 2017 – Steingrímur Eyfjörð, myndlistarmaður
  • 2014 – Andrés Þór Gunnlaugsson, tónlistarmaður
  • 2009 – Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona
  • 2008 – Sigurður Sigurjónsson, leikari
  • 2007 – Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður
  • 2006 – Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona
  • 2005 – Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), myndlistarmaður

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2