fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirPólitíkÁgúst Bjarni leiðir lista Framsóknar og óháðra

Ágúst Bjarni leiðir lista Framsóknar og óháðra

Framsókn og óháðir kynna framboðslista sinn í Hafnarfirði

„Sterkari saman fyrir Hafnarfjörð“ er yfirskrift framboðs Framsóknar og óháðra fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði.

Framboðið er tilbúið að vinna með öllum stjórnmálaflokkum að betri bæ og er Ágúst Bjarni Garðarsson oddviti listans.

Segir Ágúst markmiðið með þessum öfluga lista er að ná til allra bæjarbúa með því að stilla upp fjölbreyttum hópi fólks með ólíkan bakgrunn, reynslu og þekkingu á því sem skiptir bæjarbúa máli.

Stefnuskrá flokksins verður kynnt á næstunni en meðal þess sem Framsókn og óháðir ætla að vinna að fyrir fólk í Hafnarfirði er að börn komist inn á leikskóla við 12 mánaða aldur. Bæta akstursþjónustu fyrir eldri borgara og efla þannig félagslíf þeirra og auka aðgengi að afþreyingu. Þeir vilja fríar skólamáltíðir fyrir börn á grunn­skóla­aldri og að auðvelda einstaklingum að eignast húsnæði með því að lækka lóðaverð.

Listinn var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á fjölmennum fundi fulltrúaráðs sl. laugardag. Á listanum eru:

1. Ágúst Bjarni Garðarsson 30 aðstoðarmaður ráðherra
2. Valdimar Víðisson 39 skólastjóri Öldutúnsskóla
3. Jóhanna Erla Guðjónsdóttir 40 félagsráðgjafi
4. Margrét Vala Marteinsdóttir 32 forstöðumaður Reykjadals
5. Einar Baldvin Brimar 20 nemi við Flensborgarskólann
6. Magna Björk Ólafsdóttir 38 bráðahjúkrunarfræðingur
7. Brynjar Þór Gestsson 44 knattspyrnuþjálfari
8. Anna Karen Svövudóttir 41 þýðandi og túlkur
9. Þórður Ingi Bjarnason 45 ferðamálafræðingur
10. Jóhanna Margrét Fleckenstein 41 forstöðumaður
11. Árni Rúnar Árnason 45 forstöðumaður íþróttamannvirkja
12. Njóla Elísdóttir 59 hjúkrunarfræðingur
13. Guðmundur Fylkisson 52 lögreglumaður
14. Selma Dögg Ragnarsdóttir 34 byggingaiðnfræðingur
15. Ingvar Kristinsson 55 verkfræðingur
16. Linda Hrönn Þórisdóttir 43 uppeldis- og menntunarfræðingur
17. Ólafur Hjálmarsson 67 vélfræðingur
18. Elísabet Hrönn Gísladóttir 43 hársnyrtir
19. Guðlaugur Siggi Hannesson 29 laganemi
20. Þórey Anna Matthíasdóttir 60 atvinnubílstjóri og leiðsögumaður
21. Sigurður Eyþórsson 47 framkvæmdarstjóri
22. Elín Ingigerður Karlsdóttir 79 matráðskona

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2