Bæjarlistinn Hafnarfirði vinnur nú að undirbúningi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
Í tilkynningu frá Bæjarlistanum segir að listinn sé skipaður fólki sem vill hafa jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt og beinir kröftum sínum alfarið að Hafnarfirði óháð stjórnmálaflokkum.
„Bæjarlistinn, sem fékk einn bæjarfulltrúa kjörinn árið 2018 og hefur því verið virkur í bæjarmálunum í fjögur ár, tekur nýju fólki og hugmyndum fagnandi og hvetur áhugasama bæjarbúa til að hafa samband við undirbúningshóp kosninganna í vor.”
Undirbúningshópinn skipa:
- Guðlaug Svala Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi
- Sigurður Pétur Sigmundsson,
- Hulda Sólveig Jóhannsdóttir,
- Jón Ragnar Gunnarsson,
- Klara G Guðmundsdóttir,
- Arnbjörn Ólafsson,
- Helga Björg Arnardóttir.