Tveir kosningafundir verða í Gaflaraleikhúsinu með frambjóðendum flokkanna í Hafnarfirði. Það er Halldór Árni Stefánsson og Netsamfelag.is sem tekur upp fundina og sendir út í samstarfi við Gaflaraleikhúsin en horfa má á fundina hér á síðunni.
Á fyrri fundinum sem er núna í kvöld verður fjallað um skólamálin, velferðina, tómstundir og menningu og á þeim seinni, sem verður á mánudagskvöld, verður um lýðræði, framkvæmdir, skipulag og fjármálastefnu bæjarins.
Listarnir verða með stutta framsögu og síðan taka þeir við spurningum úr sal.
Útsendingin hefst kl. 20.