fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirPólitíkGuðbjörg Oddný gefur kost á sér í 3.-4. sætið hjá Sjálfstæðisflokknum

Guðbjörg Oddný gefur kost á sér í 3.-4. sætið hjá Sjálfstæðisflokknum

Prófkjör Sjálfsstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar

Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, mannauðsstjóri, gefur kost á sér í 3.-4. sæti í  prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fer fram þann 10. mars nk.

Guðbjörg hefur sinnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir Hafnarfjarðarbæ og Sjálfstæðisflokkinn. Hún er varaformaður íþrótta- og tómstundanefndar Hafnarfjarðar. Hún  hefur tekið þátt í starfshópi um málefni dagforeldra og er nú í starfshópi um bættar starfsaðstæður á leikskólum bæjarins. Guðbjörg telur að hægt sé að gera enn betur í dagvistunarmálum barna og huga betur að þörfum fjölskyldna og starfsmanna. Guðbjörg vill leggja áherslu á meiri samfellu í skóla-, íþrótta og tómstundastarfi hjá hafnfirskum börnum. Hún telur að Hafnarfjarðarbær geti þjónustað alla aldurshópa betur nú þegar rekstur sveitarfélagsins er stöðugri.

Hún starfar sem mannauðsstjóri hjá Stofnfiski en hefur áður starfað meðal annars hjá utanríkisráðuneytinu og Íslandsbanka. Guðbjörg stundar meistaranám í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði við Háskólann í Reykjavík, hún hefur áður lokið MA gráðu í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og BA gráðu í heimspeki,  hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Guðbjörg er varaformaður í stjórn Fram, Sjálfstæðisfélagi Hafnarfjarðar, hún er einnig í stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, og í varastjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna. Þá situr Guðbjörg einnig í skólanefnd Menntaskólans í Reykjavík. Guðbjörg er fædd og uppalin í Hafnarfirði og býr í dag á Norðurbakkanum ásamt eiginmanni sínum, Gísla Má Gíslasyni,  og tveimur börnum þeirra sem eru 3 ára og 6 mánaða.

Fréttatilkynning

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2