Helga Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi vegna komandi þingkosninga og gefur kost á sér í 2. til 4. sæti.
„Ég tel að reynsla mín af sveitarstjórnarmálum geti nýst vel á Alþingi. Undanfarin 6 ár hef ég verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og hef í störfum mínum öðlast víðtæka þekkingu á fjölmörgum málaflokkum sem snúa að hagsmunum íbúa og umhverfis.
Ég er nú formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs og varaformaður í Fjölskylduráði auk setu í fjölmörgum starfshópum og nefndum.
Um árabil hef ég gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, meðal annars sem formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði og varaformaður kjördæmisráðs í Suðvesturkjördæmi.
Einnig hef ég síðustu þrú ár verið stjórnarmaður í VR, einu stærsta stéttarfélagi landsins og er þar formaður jafnréttisnefndar félagsins.
Mínar helstu áherslur eru jöfnuður og réttlæti. Ég vil beita mér fyrir því að lífskjör á Íslandi verði betri með aukinni framleiðni, styttri vinnutíma, og hærri meðallaunum,” segir Helga í tilkynningu.