fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkHilmar Ingimundarson sækist eftir 4. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum

Hilmar Ingimundarson sækist eftir 4. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum

Hilmar Ingimundarson, viðskiptafræðingur, sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fram fer 3.-5. mars n.k.

Hilmar hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn undanfarin ár og situr sem fulltrúi í Fulltrúaráði Hafnarfjarðar og Kjördæmisráði Suðvesturkjördæmis ásamt því að vera meðstjórnandi í Sjálfstæðisfélaginu Fram. Einnig sat hann sem áheyrnarfulltrúi í fræðsluráði bæjarins 2010-2012 sem fulltrúi foreldra leikskólabarna. Hilmar hefur lokið MBA námi frá UniSA og er meðstofnandi Kernel Edge Technologies Ltd.

Hilmar er giftur Elísabet Birgisdóttur sjúkraþjálfara og eiga þau þrjú börn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hilmari.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2