fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkJón Ingi Hákonarson leiðir lista Viðreisnar í Hafnarfirði

Jón Ingi Hákonarson leiðir lista Viðreisnar í Hafnarfirði

Slitnaði upp úr viðræðum um sameiginlegt framboð með Bjartri framtíð

Jón Ingi Hákonarson, ráðgjafi í starfsendurhæfingu og MBA, leiðir lista Viðreisnar í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí nk. Vaka Ágústsdóttir, ráðningar- og þjálfunarstjóri LS Retail er í öðru sæti og Þröstur Emilsson, framkvæmdastjóri í því þriðja.

Viðreins og Björt framtíð voru í viðræðum um sameiginlegt framboð og var kominn uppkast að lista er upp úr slitnaði milla flokkanna.

Í tilkynningu segir að Viðreisn sé frjálslynt stjórnmálaafl sem leggi áherslu á jafnrétti og jöfn tækifæri allra, frelsi til orðs og athafna sem hefti ekki frelsi annarra.

„Markmið Viðreisnar er að berjast fyrir réttlátu samfélagi, fjölskylduvænna samfélagi og virkja almenning til áhrifa. Við viljum virkja lýðræðið og setjum almannahagsmuni ávallt framar sérhagsmunum.“

Félag Viðreisnar í Hafnarfirði birti framboðslista flokksins í dag.

Listann skipa:

  1. Jón Ingi Hákonarson, ráðgjafi í starfsendurhæfingu, MBA
  2. Vaka Ágústsdóttir, ráðningar- og þjálfunarstjóri LS Retail
  3. Þröstur Emilsson, framkvæmdastjóri, formaður velferðarnefndar Viðreisnar
  4. Sunna Magnúsdóttir, viðskiptafræðingur
  5. Árni Stefán Guðjónsson, grunnskólakennari og handboltaþjálfari
  6. Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta
  7. Ómar Ásbjörn Óskarsson, varaþingmaður og markaðssérfræðingur
  8. Þórey S. Þórisdóttir, doktorsnemi í viðskiptafræði, formaður Viðreisnar í Hafnarfirði
  9. Hrafnkell Karlsson, menntaskólanemi og fráf. formaður Hinsegin félagsins Bur í MH
  10. Harpa Þrastardóttir, verkfræðinemi og umhverfis- og gæðastjóri
  11. Daði Lárusson, félags- og viðskiptafræðingur og markmannsþjálfari
  12. Edda Möller, útgáfustjóri Skálholtsútgáfunnar
  13. Jón Garðar Snædal Jónsson, byggingafræðingur
  14. Ásta Rut Jónasdóttir, stjórnmálafræðingur
  15. Þorvarður Goði Valdimarsson, almannatengill
  16. Lilja Margrét Olsen, lögfræðingur
  17. Þorsteinn Elí Halldórsson, framkvæmdastjóri
  18. Sóley Eiríksdóttir, sagnfræðingur
  19. Halldór Halldórsson, öryrki
  20. Kristín Pétursdóttir, hagfræðingur
  21. Benedikt Jónasson, múrari
  22. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2