Framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði var samþykktur einróma af á fjölmennum fundi Félags Viðreisnar í Hafnarfirði í gær.
Oddviti listans er Jón Ingi Hákonarson, núverandi bæjarfulltrúi flokksins. Í öðru sæti listans er Karólína Helga Símonardóttir, fjármálastjóri. Í þriðja sæti listans er Árni Stefán Guðjónsson, áfangastjóri Flensborgarskólans. Í fjórða sæti er Sigrún Jónsdóttir, flugfreyja.
„Viðreisn ætlar sér stóra hluti í kosningunum í maí. Við komum inn í bæjarmálin af miklum krafti fyrir fjórum árum og stóðum uppi sem þriðji stærsti flokkur bæjarins. Það er okkar markmið að bæta ofan á þann góða árangur í ár“ segir Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði í tilkynningu. „Viðreisn ætlar að leggja áherslu á vellíðan og lífsgæði fyrir bæjarbúa, í öllu og alltaf. Við ætlum okkur að tryggja það að öll börn í Hafnarfirði fái dagvistun frá 12 mánaða aldri og að grunnskólar bæjarins fái hver sitt eigið mötuneyti. Við ætlum að gera stórátak í lagningu hjólastíga og viljum að öll börn í Hafnarfirði eigi rétt á frístundastyrk, ekki bara þau sem náð hafa 6 ára aldri. Í stuttu máli þá viljum við opið og lifandi samfélag í Hafnarfirði, þar sem allir geta notið sín.“
Framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði
- Jón Ingi Hákonarson, bæjarfulltrúi
- Karólína Helga Símonardóttir, fjármálastjóri
- Árni Stefán Guðjónsson, áfangastjóri Flensborgarskólans í Hafnarfirði
- Sigrún Jónsdóttir, flugfreyja
- Auðbergur Már Magnússon, fyrrv. flugumferðarstjóri
- Þórey S. Þórisdóttir, doktorsnemi
- Þröstur V. Söring, framkvæmdastjóri og byggingatæknifræðingur
- Lilja Guðríður Karlsdóttir, sviðsstjóri og samgönguverkfræðingur
- Sigurjón Ingvason, lögfræðingur
- Rebekka Rósinberg Harðardóttir, löggiltur fasteignasali
- Hrafnkell Karlsson, organisti í Árbæjarkirkju
- Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir, forstöðumaður hjá Klifinu
- Máni Þór Magnason, nemi
- Eva Rut Bernhöft Reynisdóttir, nemi
- Sævar Már Gústavsson, sálfræðingur
- Sonja M. Scott, mannauðsstjóri CCEP
- Hermundur Sigurðsson, iðnfræðingur
- Ásthildur Ásmundardóttir, listakona
- Daði Lárusson, sérfræðingur hjá Virk
- Vaka Ágústsdóttir, ráðningar- og þjálfunarstjóri
- Halldór Halldórsson, eftirlaunaþegi
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður