fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkKristinn vill verja annað sætið

Kristinn vill verja annað sætið

Kristinn Andersen, verkfræðingur og forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, gefur áfram kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í bænum, en það sæti skipaði hann á framboðslista flokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningum.

Kristinn lauk doktorsnámi í Bandaríkjunum, hann hefur starfað bæði þar og hérlendis í atvinnulífinu við tækniþróun og nýsköpun um árabil og er núna prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands. Þá hefur hann gegnt formennsku Verkfræðingafélags Íslands og sinnt ýmsum félagsstörfum auk áralangrar þátttöku í starfi Sjálfstæðisflokksins.

Hann leggur áherslu á að traustur rekstur og stjórn fjármála bæjarins skili sér í velsæld og hag íbúa og fyrirtækja í Hafnarfirði og að reynsla hans og bakgrunnur með kosningu áfram í 2. sæti framboðslistans styrki þann hóp sem kjörinn verður til starfa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar til næstu fjögurra ára.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2