Miðflokkurinn býður fram í sveitarstjórnarkosningunum í Hafnarfirði. Þetta var ákveðið á stofnfundi Miðflokksins í Hafnarfirði í síðustu viku.
Þar var Sigurður Þ. Ragnarsson kosinn formaður og aðrir í stjórn eru Tómas Ellert Tómasson, Elínbjörg Ingólfsdóttir, Gísli Sveinbergsson og Jónas Henning Óskarsson.
Kallar flokkurinn eftir framboðum en lokafrestur til að skila framboðum er kl. 12 laugardaginn 3. mars nk. en senda má framboð á hafnarfjordur@midflokkurinn.is