Miðflokkurinn er nýr flokkur í íslenskri pólitík en eins og flestir vita varð hann til er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrum formaður Framsóknarflokksins, sagði sig úr Framsóknarflokknum og stofnaði eigin flokk.
Miðflokkurinn hefur nú opnað kosningaskrifstofu að Bæjarhrauni 8 og sl. mánudag var fjölmennt þar við opnunina.
Gárungar hafa sagt að framsóknarmenn séu jafnsjaldséðir í Hafnarfirði og áttin austur sem virðist hafa orðið útundan í umræðum Hafnfirðinga. Sjaldan hafa framsóknarmenn átt fulltrúa í bæjarstjórn en framsóknarmenn hafa verið því mun sterkari í Kópavogi.
Miðað við mætinguna á mánudaginn er alveg óvíst hvernig viðbrögð kjósenda verða í kjördæminu en Miðflokkurinn mældist í könnun MMR sem birt var sl. mánudag með 12,3% fylgi á landsvísu en Framsóknarflokkurinn með 8,6%.