fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirPólitíkSigurður Þ. Ragnarsson leiðir lista Miðflokksins

Sigurður Þ. Ragnarsson leiðir lista Miðflokksins

Miðflokkurinn býður fram í Hafnarfirði

Almennur félagsfundur Miðflokksins í Hafnarfirði hefur samþykkti tillögu uppstillinganefndar um framboðslista Miðflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði.

Oddviti listans er Sigurður Þ. Ragnarsson veður- og jarðvísindamaður.

„Við erum ákaflega stolt af þessum sterka lista sem við bjóðum fram hér í Hafnarfirði. Hafnarfjörðurinn er sterkt og samheldið samfélag byggt á grónum merg og við viljum byggja það upp til framtíðar á þeim grunni,“ segir Sigurður. „Við leggjum höfuðáherslu á að finna skynsamlegar lausnir á þeim áskorunum sem Hafnarfjarðarbær stendur frammi fyrir og viljum fá bæjarbúa og önnur framboð með okkur í uppbyggilega rökræðu um þær. Við göngum því óbundin til kosninganna í vor en erum tilbúin að starfa með öllum sem vilja vinna með okkur að skynsamlegum málum sem bæta hag bæjarbúa. Við munum alltaf setja málefnin í forgang og hlökkum til að kynna stefnumál okkar á næstu vikum.“

18 efstu frambjóðendur Miðflokksins í HafnarfirðiMið

Listann skipa:

  1. Sigurður Þ. Ragnarsson, náttúruvísindamaður
  2. Bjarney Grendal Jóhannesdóttir, grunnskólakennari
  3. Jónas Henning, fjárfestir
  4. Gísli Sveinbergsson, málarameistari
  5. Arnhildur Ásdís Kolbeins, viðskiptafræðingur
  6. Elínbjörg Ingólfsdóttir, öryggisvörður
  7. Ingvar Sigurðsson, framkvæmdastjóri
  8. Magnús Pálsson, málarameistari
  9. Sævar Gíslason, iðnfræðingur
  10. Ásdís Gunnarsdóttir, sjúkraliði
  11. Davíð Gígja, sjómaður
  12. Bjarni Bergþór Eiríksson, sjómaður
  13. Sigurður F. Kristjánsson, kjötiðnaðarmaður
  14. Haraldur J Baldursson, véltæknifræðingur
  15. Skúli Alexandersson, bílstjóri
  16. Rósalind Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur
  17. Árni Guðbjartsson, f.v. baadermaður
  18. Guðmundur Snorri Sigurðsson, bifvélavirkjameistari
  19. Tómas Sigurðsson, rekstrarstjóri
  20. Árni Þórður Sigurðarson, tollvörður
  21. Kristinn Jónsson, skrifstofumaður
  22. Nanna Hálfdánardóttir, frumkvöðull

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2