fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirÞorgerður Katrín og Sigmar Guðmundsson í efstu sætum Viðreisnar í Kraganum

Þorgerður Katrín og Sigmar Guðmundsson í efstu sætum Viðreisnar í Kraganum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, leiðir framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi (Kraganum) fyrir komandi þingkosningar sem fara fram þann 25. september næstkomandi. Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður er í 2. sæti listans og Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur skipar 3. sætið.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

„Ég er gríðarlega stolt af þessum öfluga lista hjá okkur hér í Kraganum og er afar spennt fyrir næstu mánuðum í kosningabáráttu með þessum fjölbreytta og skemmtilega hópi. Komandi kosningar munu snúast um það hvernig samfélag við viljum byggja hér til framtíðar og það hvort almannahagsmunir ráði þar för eða sérhagsmunir. Áherslur okkar í Viðreisn eru alveg skýrar. Við setjum almannahagsmuni framar sérhagsmunum með frjálslyndi og jafnrétti að leiðarljósi í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi,“ segir Þorgerður Katrín.

Framboðslisti Viðreisnar í Suðvesturkördæmi

1. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar – Hafnarfirði
2. Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður – Garðabæ
3. Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur – Mosfellsbæ
4. Thomas Möller, verkfræðingur og ráðgjafi – Garðabæ
5. Ástrós Rut Sigurðardóttir þjónustufulltrúi – Hafnarfirði
6. Rafn Helgason, umhverfis- og auðlindafræðingur. Garðabæ
7. Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður – Kópavogi
8. Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi – Hafnarfirði
9. Sigrún Jónsdóttir flugfreyja – Hafnarfirði
10. Guðlaugur Kristmundsson þjálfari – Garðabæ
11. Kristín Pétursdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi – Hafnarfirði
12. Ívar Lilliendahl læknir – Mosfellsbæ
13. Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir sölufulltrúi – Hafnarfirði
14. Hermundur Sigurðsson raffræðingur – Hafnarfirði
15. Soumia I Georgsdóttir framkvæmdastjóri – Kópavogi
16. Þórólfur Heiðar Þorsteinsson lögmaður – Kópavogi
17. Sigríður Sía Þórðardóttir forstöðumaður – Kópavogi
18. Jón Gunnarsson háskólanemi – Garðabæ
19. Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður samskipta – Hafnarfirði
20. Páll Árni Jónsson stjórnarformaður – Seltjarnarnesi
21. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir dagskrárgerðarkona – Reykjavík
22. Magnús Ingibergsson húsasmíðameistari – Mosfellsbæ
23. Þórey S Þórisdóttir doktorsnemi – Hafnarfirði
24. Eyþór Eðvarðsson ráðgjafi – Garðabæ
25. Theodóra S Þorsteinsdóttir, fyrrverandi alþingismaður – Kópavogi
26. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra – Reykjavík

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2