fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkValdimar vill leiða lista Framsóknar

Valdimar vill leiða lista Framsóknar

Ekki búið að ákveða hvernig valið verður á lista

Valdimar Víðisson, varabæjarfulltrúi og skólastjóri hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér til að leiða lista Framsóknar í komandi sveitarstjórnarkosningum.

 

Núverandi fulltrúi Framsóknar og óháðra í bæjarstjórn Hafnarfjarðar er Ágúst Bjarni Garðarsson sem kosinn var á Alþingi í haust og situr áfram í bæjarstjórn en er ekki talinn ætla að gefa kost á sér í bæjarstjórn á ný. Ekki hefur verið ákveðið ennþá hvernig valið verður á lista en stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélags Hafnarfjarðar fundar í vikunni og í framhaldi af því mun fundur fulltrúaráðs taka endanlega ákvörðun um val á lista og hvort áfram verði boðið fram undir merkjum Framsóknar og óháðra.

Valdimar birti tilkynningu sína á Facebook þar sem hann segir:

„Ég hef brennandi áhuga á bæjarmálum og samfélagsmálum almennt. Síðustu 4 ár hef ég starfað sem formaður fjölskylduráðs. Ég hef áhuga á að láta enn meira að mér kveða á þessum vettvangi og gef því kost á mér í þetta verkefni.

Ég tel mig eiga fullt erindi í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Ég hef tæplega 20 ára reynslu sem skólastjóri, í fámennum og fjölmennum skóla. Sú reynsla hefur nýst mér afar vel þessi tæpu 4 ár sem ég hef látið að mér kveða á vettvangi stjórnmálanna. Fyrir utan þessi störf hef ég gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, bæði á hinu pólitíska sviði og eins í skólamálum.
Ég flutti í Hafnarfjörð árið 2008. Er giftur Sigurborgu Geirdal. Á einn son, tvær stjúpdætur og tvö barnabörn. Ég fann strax og ég flutti hingað að hér ætti ég heima. Hafnarfjörður er dásamlegur staður þar sem gott er að búa. Ég vil leggja mitt að mörkum til að Hafnarfjörður verði áfram eftirsóknarverður staður til að búa á, hér sé áfram góð þjónusta, hér séu ekki íþyngjandi álögur á fjölskyldufólk, hér sé eldri borgurum búið áhyggjulaust ævikvöld, hér sé áfram unnið að því að eyða biðlistum eftir húsnæði fyrir fatlað fólk, hér sé öflugt íþróttastarf, hér séu leik- og grunnskólar í fremstu röð og svona mætti lengi telja.“

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2