Hinn vinsæli fjölskylduvæni Ratleikur Hafnarfjarðar er nú haldinn í 21. sinn.

27 ratleiksmerkjum hefur verið komið fyrir víðst vegar í bæjarlandinu og jafnvel út fyrir það og þátttakendur hafa allt sumarið til að finna merkin og njóta útivistarinnar.

Guðni Gíslason

Markmiðið með leikn­um er að hvetja til útivistar og náttúru­skoðunar í fjöl­breyttu landi upplands Hafnarfjarðar og um leið að vekja athygli á þeim fjölmörgu perlum sem leynast í okkar næsta nágrenni.

Það er skátinn og ritstjórinn Guðni Gíslason sem leggur leikinn í 11. sinn en Ómar Smári Ármannsson hefur aðstoðað við val á stöðum og skrifað lýsingar. Ómar Smári heldur úti síðunni ferlir.is þar sem finna má óhemju mikinn fróðleik um Reykjanesið og fleiri staði og þar er upplagt að leita eftir nánari fróðleik.

Vandað útivistarkort

Til að taka þátt í leiknum þarf Ratleikskortið sem fæst frítt víða um Hafnarfjörð, á sundstöðum, bensínstöðvum, í Ráðhúsinu, í Bókasafninu, í Fjarðarkaupum, Fjallakofanum, Altis, Músik og sport og víðar.

Þátttakendur frá frítt rateikskort og leita að ratleiksmerkjum

Vandað loftmyndakort á að auðvelda útivistarfólki að rata um svæðið og sjá betur breyting­ar á landi, mismunandi hraun o.s.frv. Kortið má að sjálfsögðu nota í öllum gönguferðum enda eru merktir inn á það fjölmargir áhugaverðir staðir. Á kortinu eru gömlum þjóðleiðum gerð skil í leiðarlýsingum en þar eru einnig fróðleiksmolar sem er ætlað að veita nánari upplýsingar um viðkom­andi stað og auðvelda væntanlega leit en skyn­­samlegt er að treysta einnig á hyggjuvitið og glöggskyggni til að finna ratleiksmerkin.

Þema leiksins í ár er þjóðleiðir

Ýmislegt er að sjá á leið að merkjunum eins og þessa melatígla.

Leikurinn nær yfir bæjarlandið vítt og breytt og jafnvel út fyrir það. Þátttak­endur eru leiddir á staði með því markmiði að fólk kynnist bæjarland­inu um leið og menn njóta hressi­legrar útivistar. Fjölskrúðugt uppland Hafnar­fjarð­ar er gríðarlega áhugavert og myndavél, vasaljós og sjónauki nauðsynlegt með í för því aldrei er að vita hvað rekast má á í upplandinu. Víða má rekast á minjar um veru fólks í hraununum og sjá má stíga, hleðslur og gróna bletti. Þema leiksins í ár er „þjóðleiðir“ sem fólk og dýr hafa markað í aldanna rás. Gróður og minni umferð valda því nú að margar þeirra eru að hverfa svo mikilvægt er að halda þeim við, ganga og merkja.

Einfaldar reglur

Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á kortið og er vísbendingar að finna á lausnarblaðinu til hliðar við kortið. Á hverju spjaldi eru þrír bókstafir og þrír tölustafir. Þátt­takendur sýna fram á að þeir hafi fundið viðkomandi spjald með því að skrifa þessa stafi inn á lausnablaðið. Mikilvægt er að hreyfa ekki við sjálfum ratleiksspjöldunum og muna að birta aldrei myndir af lausnarnúmerunum!

Ert þú Léttfeti, Göngugarpur eða Þrautakóngur?

Leikurinn skiptist í þrjá styrk­leika­­flokka: Léttfeta, Göngugarp og Þrautakóng en hverjum er í sjálfs­vald sett að nýta sér leikinn á hvern þann hátt sem hentar best.

Við Sveinshelli

Til þess að verða Léttfeti þarf að finna fyrstu 9 spjöldin, eða einhver 9 spjöld. Til þess að verða Göngugarpur þarf að finna 18 spjöld en til þess að verða Þrauta­kóng­ur þarf að finna öll spjöldin 27.

Þátttakendur velja reynd­ar sjálfir hvaða spjöldum þeir leita að, en mælt er með því að byrja á fyrstu 9 spjöldunum til að átta sig á leiknum. Síðan er hægt að feta sig áfram og bæta við ratleiksstöðum eftir getu og vilja til að halda leiknum áfram. Sá sem afrekar að finna öll 27 spjöldin fyllir sjálfkrafa flokk Þrautakóngs Ratleiks Hafnar­fjarðar 2018.

Veglegir vinningar

Í haust verður dreginn út sigurvegari í hverjum styrkleika­flokki. Auk þess verða tveir heppnir kepp­endur dregnir út í hverjum flokki og fá þeir aukavinninga. Svo má alltaf búast við auka útdráttarvinningum svo það er mikilvægt að skila inn lausnarblöðum og mæta á upp­skeruhátíðina.

Meðal vinninga eru vandaðir Scarpa gönguskór frá Fjallakofanum, Bose bluetooth hátalarar frá Origo, 6 mánaða kort í sundlaugar Hafnarfjarðar, 3ja rétta máltíðir í Von mathús og í Fjörukránni, gjafabréf frá Altis, ljósmyndabókin „Hafnarfjörður“, hamborgaratilboð frá Burger-inn og „Höfnin“, afmælisrit Hafnarfjarðarhafnar.

Fjölmargir aðilar styrkja útgáfu leiksins en aðalstyrktaraðili í ár er hafnfirska fyrirtækið VHE. Aðrir sem styrkja leikinn auk þeirra sem gefa vinninga er Fjarðarkaup, Gaman ferðir, Landsnet, Altis, Fjallakofinn, Gámaþjónustan, Fjarðarfréttir, Ferlir, Gróðrarstöðin Þöll og Hafnarfjarðarbær.

Ábendingar og viðbótarfróðleik má finna á ratleikur.blog.is og á www.facebook.com/ratleikur

Skila skal inn lausnum í Þjónustuver Hafnarfjarðar í Ráðhúsinu í síðasta lagi 24. september.

Ummæli

Ummæli

Skilja eftir athugarsemd

Please enter your comment!
Please enter your name here