fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirSamið við GG verk um risastækkun Fjarðar

Samið við GG verk um risastækkun Fjarðar

Biðin er loks á enda og uppbygging hafin í miðbæ Hafnarfjarðar!

Samningur var undirritaður af forsvarsmönnum 220 Fjarðar, sem er eigandi verkefnisins, og GG Verks um viðbyggingu Fjarðar í átt að Strandgötu 26-30, þar sem Fjörður og Strandgata tengjast loksins  saman.

Áætlað er að verkefninu verði lokið á árinu 2025 og að sögn verkkaupa verður þetta mikil lyftistöng fyrir miðbæ Hafnarfjarðar þar sem verslun og þjónusta verður stóraukin.

Fyrsti áfangi verkefnisins mun kosta um 3.000 milljónir króna en heildar verkefnið á viðbyggingu ásamt breytingum á núverandi byggingum mun kosta um 6.000 milljónir króna.

„Viðbyggingin er um 9.000 m² sem samanstendur af verslunarrýmum, þekkingarsetri/nútímalegu bókasafni hótelíbúðum og 31 lúxusíbúðum, ásamt bílakjallara.  Við þessa stækkun verður kjarninn þá um 18.000 m²,” segir Guðmundur Bjarni Harðarson framkvæmdastjóri 220 Fjarðar.

„Við hjá GG verk erum mjög spennt að hefja framkvæmdir á þessari glæsilegu viðbyggingu við Fjörð. Við teljum þessa byggingu eiga eftir að efla og styrkja miðbæinn enn frekar og vera góð viðbót við iðandi mannlíf Strandgötunnar.  Við þekkjum líka miðbæinn ágætlega þar sem við erum að ljúka framkvæmdum á Dvergsreitnum í júní og þetta verkefni verður skemmtilegt framhald af því. Við hlökkum til að byrja!,“ segir Helgi Gunnarsson, framkvæmdastjóri GG verks ehf.

Nöfn á mynd: Sigurður Guðmundsson hjá Strendingi og byggingarstjóri verkefnisins, Sveinn Björnsson frá GG verk, Gísli Haraldsson framkvæmdastjóri,  Helgi Gunnarsson framkvæmdastjóri og einn eiganda GG verks, Guðmundur Bjarni framkvæmdastjóri 220 Fjarðar,  Benedikt Steingrímsson stjórnarmaður 220 Fjarðar og Rúnar Ólafsson GG verk.
Ásýnd að nýbyggingunni við Strandgötu.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2