fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirAtvinnulífSigríður Dóra er nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Sigríður Dóra er nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigríði Dóru Magnúsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til næstu fimm ára, frá 15. september nk.

Sex sóttu um embættið og lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana mat Sigríði Dóru mjög vel hæfa.

Tekur hún við stöðunni af Óskari Reykdalssyni.

Sigríður Dóra er með læknapróf frá Háskóla Íslands, sérfræðipróf í heimilislækningum og diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Sigríður Dóra býr yfir mikilli þekkingu og reynslu af rekstri og stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Frá árinu 2019 hefur hún verið framkvæmdastjóri lækninga við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Áður hefur hún gegnt stöðu yfirlæknis á tveimur heilsugæslustöðvum, starfað sem umdæmislæknir sóttvarna og einnig sem rekstrarstjóri heilsugæslustöðvar.

Í áliti hæfnisnefndar kemur m.a. fram að auk langrar reynslu af stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu hafi Sigríður Dóra reynslu af stefnumótun og breytingastjórnun þar sem hún hafi náð miklum árangri. Það sé mat nefndarinnar að Sigríður Dóra sé góður leiðtogi og mjög vel hæf til að gegna embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Þessi sóttu um:

  • Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, rekstrarstjóri
  • Nanna Sigríður Kristinsdóttir, heimilislæknir
  • Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
  • Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga
  • Sigurður Erlingsson, viðskiptafræðingur
  • Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2