Hafnarfjarðarbær auglýsir nú lausar til umsóknar atvinnulóðir í Hellnahrauni, Kapelluhrauni, Selhrauni og á Völlum miðsvæði fyrir fyrirtæki í leit að framtíðarstaðsetningu. Á svæðinu eru lausar lóðir í ört vaxandi iðnaðar- og athafnahverfi. Öflugt atvinnulíf er nú þegar á svæðinu, nálægð við alþjóðaflugvöll og höfn og samgöngur greiðar. Hverfið hefur verið í mikilli uppbyggingu og örum vexti síðustu misseri og aðgengi að hverskyns þjónustu er gott.
Hverfi í örum vexti og mikilli uppbyggingu
Kostir atvinnulóða á þessu svæði í Hafnarfirði eru margþættir. Svæðið er í örum vexti og mikil uppbygging að eiga sér stað með tilheyrandi áhrifum á fasteignaverð og verðmæti lóða. Atvinnuhverfinu er skipt upp eftir starfsemi og því tilbúið til að taka á móti ólíkum fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum s.s. í ferðaþjónustu, verslun, þjónustu, þekkingariðnaði og framleiðslu. Fyrirtæki eins og Icelandair, Promens og Naust-Marine eru meðal þeirra sem hafa komið sér vel fyrir á svæðinu. Ný mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar, sem komin eru inn í tillögu að samgönguáætlun 2017, munu auðvelda aðgengi að svæðinu enn frekar og opna það enn betur fyrir umferð úr öllum áttum m.a. að höfn og hafnarsvæði og alþjóðaflugvelli auk stærstu umferðaræða til og frá stór-höfuðborgarsvæðinu. Lóðir fyrir fjölbreytta starfsemi eru þegar tilbúnar til afhendingar og því geta fyrirtæki sem eru að leita að nýrri staðsetningu fyrir starfsemi sína strax hafist handa við að koma sér fyrir.
„Það eru mikil tækifæri til staðar á þessu atvinnusvæði fyrir hvort sem er rótgróin fyrirtæki í leit að framtíðarstaðsetningu eða smærri fyrirtæki í leit að hentugri staðsetningu með tengingu við helstu flutningsæðar til og frá landinu og um landið allt. Stór og öflug fyrirtæki hafa nýlega sest að í hverfinu og býður skipulag okkar upp á mikla möguleika eftir atvinnustarfsemi þannig að flest fyrirtæki ættu að geta fundið lóð við hæfi. Ég bind miklar vonir við ný mislæg gatnamót og hef fulla trú á því að ríkisvaldið standi við að þau verði að veruleika á næsta ári. Hafnarfjörður á það svo sannarlega inni,“ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar.